Leita í fréttum mbl.is
Embla

Bless og takk fyrir mig

Þá er komið að leiðarlokum hér á Moggablogginu. Á tiltölulega löngum bloggferli mínum hér hef ég oft hugsað hvort þetta sé rétti vettvangurinn - og að mörgu leyti var hann það. Án þess að fara nánar út í mat mitt á ólíkum kostum, sem þó hefur tekið langan tíma, þá hef ég ákveðið að koma skoðunum mínum á framfæri á eigin vegum í framtíðinni.

Á sama tíma og ég þakka Mogganum fyrir ágæta þjónustu á undanförnum árum hvet ég lesendur til að fylgjast áfram með mér á heimasíðunni www.soleytomasdottir.is og breyta tenglum sínum til samræmis.

 


Hvað má blóðrásin kosta?

Spennandi málfundur um almenningssamgöngur verður haldinn á vegum Vinstri grænna í Reykjavík í kvöld kl. 17-21 á Vesturgötu 7. Dagskráin er svohljóðandi (og já ég veit, það eru ansi margir karlar að tala...):

17.00-18.00 Erindi

Pétur Gunnarsson rithöfundur flytur ávarp
Árni Þór Sigurðsson alþingismaður - Þjóðhagsleg hagkvæmni almenningssamgangna
Pálmi Randversson verkfræðingur - Góðar samgöngur, betri borg
Smári Ólafsson samgönguverkfræðingur - Leiðarkerfi Strætó bs
Margrét Guðnadóttir læknir - Neytandinn/þolandinn!

18.00-19.00 Umræður

19.00-19.30 Matur í boði Vinstri grænna í Reykjavík

19.30-21.00 Hópastarf

Þjóðhagsleg hagkvæmni almenningssamgangna
Betri borg
Leiðarkerfið - er úrbóta þörf?

Hóparnir halda svo áfram törfum og skila niðurstöðum á fundi borgarmálahóps mánudaginn 5. október nk.

Öll velkomin!


Ræðan í fullri lengd

Forseti – borgarfulltrúar!

Fyrir rétt tæpu ári síðan lagðist íslenskt efnahagslíf á hliðina. Á sama tíma vaknaði íslenskt samfélag til lífsins. Eftir margra ára blekkingarleik íslenskra útrásarvíkinga, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks blasti ískaldur veruleikinn við.

Fram á síðustu stundu var almenningi talin trú um að hin ógnarflóknu krosseignartengsl, skúffufyrirtæki, afleiðuviðskipti og kúlulán væru stórkostleg en svo flókin að það tæki því ekki að vera að setja sig inn í málin. Best væri bara að þegja og dást að snillingunum. Þau sem efuðust voru ýmist hlægileg, afbrýðisöm eða þunglynd.

Blekkingin var algjör. –Í þágu útrásarvíkinga, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem í 17 ár unnu að því að gefa vinum sínum og vandamönnum fiskinn í sjónum, samskiptatæknina og peningana í bönkunum.

Þó hrunið hafi sannarlega verið hræðilegt – og eigi eftir að hafa áhrif á íslenska þjóð um mörg ókomin ár – er ómetanlegt að sjá hvernig gagnrýnin og heilbrigð hugsun hefur vaxið og dafnað í íslensku samfélagi undanfarið ár. Íslenska þjóðin gefst ekki upp.

---

Það byrjaði með byltingunni í janúar. Búsáhaldabyltingu sem krafðist uppgjörs. Uppgjörs við miskunnarlausa frjálshyggju, einkavæðingu, græðgi og glæfraskap. Búsáhaldabyltingin krafðist endurmats. Endurmats á því sem raunverulega skipti máli í lífinu – að fólk yrði tekið framyfir fjármuni. Búsáhaldabyltingin krafðist ábyrgðar. Ábyrgðar á samfélagslegum verðmætum og velferð.

Búsáhaldabyltingin vann stóra sigra síðastliðið vor. Sautján ára Sjálfsstæðisstjórn var velt úr sessi. Fólkið í landinu gerði upp við frjálshyggju, einkavæðingu, græðgi og glæfraskap og kaus að setja fólk og samfélag þess í forgang. Á landsvísu.

Í sveitarstjórnum hefur ekki verið kosið frá því vorið 2006. Það var um svipað leyti og Bjarni Ármannsson var orðaður við forsetaembættið og Hannes Smárason var aðal. Bankarnir skiluðu stjarnfræðilegum hagnaði og fáir þorðu að gagnrýna.

Borgarbúar sitja uppi með áherslur vorsins 2006. Meirihluta sem snérist um vatnsrennibrautargarða og fleiri einbýlishúsalóðir. Meirihluta sem gerði ósvífna tilraun til að koma Orkuveitu Reykjavíkur í hendur Bjarna Ármannssonar og Hannesar Smárasonar. Meirihluta sem reyndar sprakk í þeim æfingum öllum saman – en lærði nákvæmlega ekki neitt.

 

Forseti.

Ef ekki væri fyrir það – að forseti borgarstjórnar og borgarstjóri hafa skipt um sæti – og borgarstjórnarflokkur Framsóknarflokksins hefur þynnst svo um munar – þá væri örugglega hægt að sannfæra mig um að við værum stödd einhvers staðar um mitt árið 2007.

Málflutningur borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er með þeim hætti hér í dag að það er eins og þau hafi misst af samtímanum. Eins og þau séu bara í lofttæmdum umbúðum að lesa Frjálshyggju fyrir lengra komna og ræða leiðir til að fjölga einbýlishúsalóðum.

---

En forseti – nú á að selja hlut borgarbúa í HS Orku til skúffufyrirtækis fyrir kúlulán til sjö ára með veði arðinum sem sumum okkar þykir eðlilegt að samfélagið njóti góðs af. Með öðrum orðum – færa samfélagsleg verðmæti í hendur einkaaðila – aðila sem semja sig fram hjá Evrópska efnahagssvæðinu og íslenskum lögum – aðila sem ætla að borga okkur seinna – og það með arðinum sem annars hefði getað farið í að borga niður skuldir Sjálfstæðisáranna.

Það er nefnilega þannig að hér kemur hver fulltrúi meirihlutans upp á fætur öðrum – kampakátur yfir að hafa landað samningi við útlendingana. Yfir að hafa klippt á borðann á brunaútsölu samfélagslegra verðmæta á Íslandi. Útsalan er hafin – fjölbreytt úrval  orkuauðinda - fyrstur kemur fyrstur fær.

Meirihlutinn er ekki bara ánægður með að útsalan sé hafin – heldur telur hann sig hafa landað góðum samningi miðað við árferði. Að hafa komið fyrirtækinu í verð, þrátt fyrir að staða þess sé slæm og útlitið ekki gott. Það er eins og fulltrúar meirihlutans hafi hvorki séð né heyrt varnaðarorð almennings, sérfræðinga og nóbelsverðlaunahafa í fjölmiðlum og á götum úti – allt frá falli síðasta haust. Nei – hjá meirihlutanum fer ekki mikið fyrir áhyggjum af hrægömmum sem nýta sér efnahagsþrengingar til að sölsa undir sig verðmæti fyrir lítið fé. Þeim finnst þau heppin og klár. Það finnst mér ekki.

---

Hvar er nú formaður Framsóknarflokksins og varaformaður Skipulagsráðs. Helsti samstarfsmaður borgarfulltrúa Óskars Bergssonar? –Hver er hans skoðun á gerningnum? –Er hann búinn að gleyma Icesave – og ógninni sem þá steðjaði að íslenskum auðlindum?  -Eru þeir félagar búnir að gleyma miðstjórnarsamþykkt Framsóknarflokksins – sem hljóðar svo með leyfi forseta:

Við aðstæður sem þessar kristallast nauðsyn þess að eignarhald
þjóðarinnar á auðlindum sínum sé tryggt. Það verður einungis gert
með stjórnarskrárákvæði um sameign þjóðarinnar á auðlindum
sínum.

Tilvitnun lýkur. Borgarfulltrúi Óskar Bergsson og formaður hans virðast ekki hafa nokkrar áhyggjur af þjóðareign auðlinda. Þvert á móti notfæra þeir sé nú ákvæðisleysið í stjórnarskránni til þess að selja orkufyrirtæki – sem fram til þessa hefur verið sameign Reykvíkinga. Orkufyrirtæki sem er með leigusamning um orkunýtingu í 65-130 ár. Þá er rétt að geta þess að lýðveldið Ísland er einmitt 65 ára um þessar mundir. Borgarulltrúa Framsóknarflokksins virðist vera meira umhugað um flokksráðssamþykktir Vinstri grænna en miðstjórnarsamþykktir eigin flokks. Í stað þess að halda orkuvinnslufyrirtækinu sem hefur auðlindirnar í hendi sér um ókomin ár – stendur hann hér og réttlætir söluna! Og það við aðstæður sem þessar!

---

Forseti – víkjum þá aðeins að vinnubrögðunum. Síðasta einkavæðingarævintýri meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks  kallaði á uppgjör og margra mánaða vinnu hjá fulltrúum allra flokka. Niðurstaða vinnunar var svo sett fram í svokallaðri REI-skýrslu fyrir rúmu ári síðan. Í henni segir meðal annars – með leyfi forseta:

Stýrihópurinn telur að atburðarrásin beri með sér að endurskoða þurfi margt í ákvarðanatökuferli Orkuveitu Reykjavíkur. Verkferlar og valdmörk voru óskýr og ákvarðanir teknar án þess að fullnægjandi umræða hafi átt sér stað.

Seinna í sömu skýrslu segir svo:

Eins og fram hefur komið var tíminn í aðdragandanum ófullnægjandi fyrir þá fulltrúa sem ætlað var að taka afstöðu til tillagnanna. Jafnframt var upplýsingagjöf og kynningu ábótavant og ganga þurfti eftir tilteknum upplýsingum. Á stjórnarfundi OR 3. október var kynning málsins, eftir á að hyggja ófullnægjandi og tillaga um frestun felld þrátt fyrir að ekki hafi gefist nægilegur tími til að kynna sér gögnin og tillögurnar.

Tilvitnun lýkur. Það var sumsé þannig að fulltrúar allra flokka – þar á meðal núverandi borgarstjóri og núverandi formaður borgarráðs – töldu brýnt að ákvarðanataka væri ávallt og ætið upplýst af hálfu kjörinna fulltrúa og þau flausturslegu vinnubrögð sem einkenndu REI-málið allt mættu ekki endurtaka sig.

En hvað gerist svo? –Hvernig voru vinnubrögðin í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur í þessu máli? –Hafði fullnægjandi umræða átt sér stað áður en ákvörðun var tekin? –Var fallist á frestun tillögunnar þar sem gögnin höfðu ekki borist innan tilskilins tíma? –Hefur verið fallist á tillögu okkar í minnihlutanum um frestun hér í dag?

Nei. Vinnubrögð meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eru vinnubrögð vorsins 2006. Leynd, hraði og samráðsleysi.

---

Að lokum verð ég að segja nokkur orð um það yfirklór meirihlutans um að fjármálaráðherra sé ekki hótinu skárri en þau af því að þjóðarbúið hefur ekki efni á að greiða skuldir útrásarvíkinganna.  Ég hef fyrir það fyrsta aldrei skilið hvernig fólki finnst réttlætanlegt að gera eitthvað rangt – ef einhver annar gerir það – en burtséð frá því, þá eru aðstæður fjármálaráðherra og aðstæður meirihlutans í Orkuveitu Reykjavíkur gerólíkar.

Núverandi ríkisstjórn tók við þjóðarbúinu í einni rjúkandi rúst. Veðsetning á eignum almennings undanfarin 17 ára hafði verið með hvílíkum ólíkindum. Mistök þessara flokka eru af þeirir stærðargráðu að það er hægara sagt en gert að reyna að leiðrétta þau. –Og hræddust er ég um að sá gerningur sem hér er í farvatninu – verði ekki svo auðveldlega leiðréttur heldur!

Hitt er – að væna ríkisstjórnina um viljaleysi af því að hún riggaði ekki fram tilboði innan þess tíu daga frests sem meirihlutinn veitti. Það er alveg með ólíkindum að fulltrúi Framsóknarflokksins skuli leyfa sér að hnýta hér í ríkisstjórn, sem hefur unnið hörðum höndum við að reyna að leysa úr þeim geigvænlega vanda sem blasti við íslensku þjóðinni eftir valdatíð Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks.

Hafi raunverulegur vilji verið til staðar hjá meirihluta borgarstjórnar til að halda hlutnum í samfélaglegri eigu, þá hefði meirihlutanum verið í lófa lagið að fresta samkomulaginu sem hér liggur til afgreiðslu og leita raunverulegra leiða til að ná farsælli lendingu. Við höfum tíma. Ef borgarfulltrúa Óskari Bergssyni er raunverulag alvara með því að vilja selja ríkinu hlutinn, nú þá samþykkir hann bara frestunartillöguna sem liggur hér fyrir.

---

Forseti.

Það hryggir mig að þverpólítíski samráðsmeirihlutinn ætli að keyra þetta mál hér í gegn, þrátt fyrir ítrekaðar óskir um frestun. Ekki gafst ráðrúm til að reyna til þrautar að halda þessum samfélagsverðmætum í eigu almennings, ekki til að fá áhættugreiningu frá utanaðkomandi aðilum, né heldur til að kanna lögmæti samningsins. Hér ríkir meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks undir kjörorðinu hugsum stórt horfum langt og byrjum strax. Alveg eins og vorið 2006.

Borgarstjórinn í Reykjavík sýnir hér sitt rétta andlit. Borgarstjórinn sem ítrekað hefur farið yfir mikilvægi þess að setja pólítísk ágreiningsefni til hliðar á erfiðum stundum – borgarstjórinn sem ítrekað hefur sagst vilja hafa heildarhagsmuni að leiðarljósi í stað flokkspólítískra átaka. Í dag beitir hún vinnubrögðum vorsins 2006.

Ég sé því miður ekki fram á að krafa búsáhaldabyltingarinnar um uppgjör, endurmat og ábyrgð nái fram að ganga á meðan Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur mynda meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur.

Uppgjörinu er nefnilega ekki lokið. Þótt á landsvísu hafi þjóðin gert upp við frjálshyggju, einkavæðingu, græðgi og glæfraskap – á hún eftir að gera það í sveitarstjórnum. Það uppgjör mun eiga sér stað í vor - og þá treysti ég því að þjóðin muni eftir því sem hér er að gerast.

 


mbl.is Heitt og rafmagnað í Ráðhúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fylgd - í tilefni dagsins

Komdu, litli ljúfur,
labbi, pabba stúfur,
látum draumsins dúfur
dvelja inni um sinn.
-- heiður er himinninn.
Blærinn faðmar bæinn,
býður út í daginn.
Komdu, kalli minn.

Göngum upp með ánni
inn hjá mosaflánni,
fram með gljúfragjánni
gegnum móans lyng,
-- heyrirðu hvað ég syng --
líkt og lambamóðir
leiti á fornar slóðir
innst í hlíðarhring.

Héðan sérðu hafið
hvítum ljóma vafið,
það á geymt og grafið
gull og perluskel,
ef þú veiðir vel.
En frammi á fjöllum háum
fjarri sævi bláum
sefur gamalt sel.

Glitrar grund og vangur,
glóir sund og drangur.
Litli ferðalangur
láttu vakna nú
þína tryggð og trú.
-- Lind í lautu streymir,
lyng á heiði dreymir,
-- þetta land átt þú.

Hér bjó afi og amma
eins og pabbi og mamma.
Eina ævi og skamma
eignast hver um sig.
-- stundum þröngan stig.
En þú átt að muna
alla tilveruna,
að þetta land á þig.

Ef að illar vættir
inn um myrkragættir
bjóða svikasættir
svo sem löngum ber
við í heimi hér,
þá er ei þörf að velja:
þú mátt aldrei selja
það úr hendi þér.

Göngum langar leiðir,
landið faðminn breiðir.
Allar götur greiðir
gamla landið mitt,
sýnir hjarta sitt.
Mundu, mömmu ljúfur,
mundu, pabba stúfur,
að þetta er landið þitt.

Guðmundur Böðvarsson

mbl.is Endurskoðendur í svaðið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meiriháttar minnihluti

Sala meirihlutans á hlut Orkuveitunnar í HS-orku verður skuggalegri og skuggalegri. Spurningarnar 32 sem lagðar voru fram af fulltrúum minnihlutans í borgarráði eiga fullkomlega rétt á sér og verður fróðlegt að sjá hvernig meirihlutinn ætlar að standa í lappirnar eftir að svörin liggja fyrir.

Það er hræðilegt að selja erlendu skúffufyrirtæki orkufyrirtæki og það fyrir kúlulán með veði í sjálfu sér. En að sjá ekki einu sinni sóma sinn í því að vanda til verksins er til háborinnar skammar!


mbl.is Fresta afgreiðslu á sölu HS Orku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýndarlýðræði

Í meðfylgjandi frétt er greint frá því að meirihluti borgarstjórnar samþykkti í dag tillögu um að láta útfæra leiðir til að gefa borgarbúum tækifæri til að forgangsraða ákveðnum fjármunum til nýframkvæmda og smærri viðhaldsverkefnaí tengslum við fjárhagsáætlun fyrir árið 2010.

Tillagan hljómar vissulega vel - og ég hefði að sjálfsögðu samþykkt hana - ef ég hefði einhverja minnstu trú á að henni yrði framfylgt. En reynsla mín af lýðræðisiðkun meirihlutans, sér í lagi þegar kemur að forgangsröðun framkvæmda, er sú að þar sé nákvæmlega enginn áhugi fyrir hendi á að skiptast á skoðunum, hvað þá að taka tillit til ólíkra sjónarmiða.

Ég hef setið í framkvæmdaráði og veit hvernig vinnan þar fer fram. Formaður framkvæmdaráðs hefur ekki sýnt nokkurn minnsta áhuga á samráðspólítík - þó hann láti sem svo sé. Við fjárhags- og framkvæmdaáætlunargerð sviðsins fyrir árið 2009 gafst aldrei nokkurt tækifæri fyrir minnihlutann til að hafa áhrif og ekkert bendir til þess að vinnubrögðum verði breytt þetta árið.

Meirihluti sem ekki einu sinni getur tekið tillit til ólíkra sjónarmiða fjölskipaðs stjórnvalds, nýtir ekki hverfisráð borgarinnar sem skyldi og hefur lágmarkssamráð við hagsmuna- og grasrótarsamtök í vinnu sinni er ekki líklegur til að taka raunverulegt mark á ólíkum sjónarmiðum borgarbúa.

Tillagan er til þess eins að skapa óraunhæfar væntingar meðal borgarbúa. Þess vegna sátum við Vinstri græn hjá við afgreiðslu málsins.

(Áhugasöm geta lesið ræðu mína í meðfylgjandi skrá).


mbl.is Borgarbúar geti tekið þátt í mótun fjárhagsáætlunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Samningurinn sem ekki er til

hsorka

Í samningnum segir orðrétt:

Trúnaður

Aðilar eru sammála að gera sitt besta til að halda tilveru og innihaldi þessa Samnings í ströngum trúnaði og að veita engar upplýsingar varðandi þennan samning til annarra en stjórnarmeðlima, bæjarfulltrúa/meðlima bæjarstjórna/borgarráðs, yfirmanna, starfsmanna, og bókhaldslegra, lagalegra og fjárhagslegra ráðgjafa eins og með þarf til að meta þennan Samning. Þar að auki gera Aðilarnir sér grein fyrir því að Félagið og/eða hluthafar í Félaginu geta krafist afrits af þessum Samningi til þess að geta ákveðið hvort þeir vilji nýta eða afsala sér forkaupsrétti í samræmi við samþykktir Félagsins.

Erum við að tala um Nýja Ísland? -Opin og lýðræðisleg vinnubrögð?

Nei. Ekki á meðan Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur eru við völd. Þar á bæ eru engin spurningarmerki sett við leyndarhyggju, samráðsleysi, kúlulán og einkavæðingu. Blind einkavæðingaráform, án þess að gætt sé að fjárhagslegum og samfélagslegum hagsmunum í þágu almennings, verða ekki stöðvuð fyrr en þessir flokkar komast frá.


mbl.is Vilja að samningur við Magma verði gerður opinber
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Muniði eftir REI?

REI-málið var stærsta klúður Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks í sveitarstjórnarmálum fram til þessa - enda sprakk það í andlitið á þeim, meirihlutinn sprakk, borgarstjórinn missti traust síns eigin fólks og borgarbúa og í kjölfarið tók við margra mánaða vinna við uppgjör málsins á hinum pólítíska vettvangi.

Fyrirhuguð sameining REI og Geysis Green Energy var unnin í loftköstum, málin voru illa eða ekkert kynnt þeim sem raunverulega ábyrgð báru í málinu og vinnubrögðin miðuðu öll við hagsmuni einkaaðilanna. Asinn, leyndin og samráðsleysið var harðlega gagnrýnt.

Þess utan var hagsmuna almennings ekki gætt í samningnum sjálfum, þar sem Geysir Green Enenrgy hefði fengið einkaafnot af þekkingu og mannauð Orkuveitu Reykjavíkur, hefði fengið vörumerkið til afnota og fleira og fleira.

Síðan eru liðin tvö ár. Nú hefur verið boðað til fundar í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, þar sem til stendur að samþykkja kaup fyrirtækjalepps í Svíþjóð á hlut Orkueitunnar í HS-orku. Engin gögn liggja fyrir vegna málsins. Ekki verður veittur lengri frestur til að kanna möguleika á opinberri eigu til hlítar. Formaður stjórnar leggur mikið upp úr því að drífa málið af - og forsvarsmaður Magma stærir sig af árangri sínum gegnum tíðina í þágu hluthafa.

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks ætlar að selja auðlindir almennings fyrir kúlulán með veði í skúffufyrirtæki í Svíþjóð. Fjárhagslegur ábati er vandséður - og ljóst að samfélagsleg áhrif skipta ekki máli.

Stundum er talað um að kjósendur hafi gullfiskaminni. Ég efast um það. Í þessu tilfelli virðist sem minni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sé farið að förlast.


mbl.is Eignast meirihluta í HS Orku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smjattað á hausnum af skömminni

Það hvarflaði svo sem aldrei að mér að þessi maður myndi biðja mig afsökunar. Framanaf var viðtalið nákvæmlega eins og við var að búast, þegar hann útskýrði hvernig allt sem hann hafði gert var réttlætanlegt og hvað allir aðrir höfðu verið vondir.

Það sem kom mér á óvart var þegar hann, sjálfur Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrum bankastjóri Kaupþings, fór að útskýra fyrir Sigmari hvernig stjórnvöld ættu nú að koma til móts við almenning í landinu. Svo óforskammaður grunaði mig ekki að hann væri.


mbl.is Annarra að biðjast afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólítík frístundaheimilanna

Í meðfylgjandi frétt á mbl.is er greint frá því að sótt hafi verið um fyrir 2745 börn í frístundaheimilum í Reykjavík fyrir haustið. Vel gangi að ráða inn starfsfólk, en þó vanti enn um 100 starfsmenn. Þetta þykir mér fréttnæmt sem borgarfulltrúa og aðalmanni í íþrótta- og tómstundaráði - enda hefur ráðið ekki enn komið saman eftir sumarfrí, þó nú séu aðeins örfáir dagar þar til frístundaheimilin taka til starfa að nýju.

Frístundaheimilin eru aðeins um 10 ára gömul í núverandi mynd, þar sem frítímanum er gert hátt undir höfði sem sjálfstæðum hluta af lífi barna. Í frístundaheimilunum fá börn að þroska með sér áhugamál og félagsfærni á annan hátt en í skólanum. Þar starfar fólk með þekkingu á sviði frítímauppeldis og leggur sig fram um að efla og styrkja heimilin í hvívetna.

Frístundaheimilin eru stórpólítískt viðfangsefni. Þau hafa glímt við mikinn mannekluvanda allt frá stofnun, rétt eins og önnur störf í uppeldis- og menntageiranum. Húsnæði hefur verið bágborið og fjármagn af skornum skammti. Á sama tíma hafa þau þurft að sanna sig gagnvart öðrum uppeldisstéttum og kennurum, foreldrum og börnum, en ekki síst gagnvart stjórnmálafólki. Á þeim tíu árum sem liðin eru hefur fjöldi barna margfaldast, samskipti skóla og frístundaheimila batnað svo um munar og ánægja barna og foreldra stigmagnast. Allt vegna metnaðar og drifkrafts starfsfólks ÍTR.

Í stjórnmálunum er því miður enn langt í land. Enn koma upp hugmyndir með reglulegu millibili um að færa reksturinn í sitt gamla horf, þ.e. að fela skólunum að bjóða upp á gæslu. Enn hljóðar samþykkt fyrir reksturinn og þar með fjárhagsáætlanir upp á að einungis 2100 börn dvelji þar að hámarki. Pólítísk eftirfylgni varðandi húsnæðismál og starfsmannamál er minni en þyrfti og umræður um frekari þróun eða verkefni í tengslum við frístundaheimilin eru afar sjaldgæfar á fundum borgaryfirvalda.

Þessu þarf að breyta. Frístundaheimilin eru gríðarlega mikilvæg fyrir börnin okkar og eiga að vera eins fagleg og skemmtileg og best verður á kosið. Til þess þarf stjórnmálafólk að hafa skilning og metnað fyrir verkefninu, forgangsraða í þess þágu og beita sér fyrir því að frekari þróun geti átt sér stað.

Í morgun óskuðum við, fulltrúar minnihlutans í íþrótta- og tómstundaráði, eftir því að haldinn yrði fundur í ráðinu hið fyrsta. Þar verðum við að fara yfir þau mál sem nú eru aðkallandi, koma því til leiðar að samþykkt fyrir reksturinn verði breytt, finna leiðir til að fullmanna frístundaheimilin, fara yfir húsnæðisþörf og fleira í þeim dúr.  Við bíðum eftir svari, en gerum ráð fyrir að fundað verði á næstu dögum. Þó fyrr hefði verið!


mbl.is 100 vantar til starfa á frístundaheimilum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Sóley Tómasdóttir
Sóley Tómasdóttir

Róttækur femínisti sem ætlar að bjarga heiminum. Ritari Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, ráðskona í Femínistafélagi Íslands og gegnir jafnframt ýmsum hlutverkum í borgarstjórn Reykjavíkur - allt eftir því hvernig vindar blása. 

Feb. 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband